YFIRLIT
-
Tegund Raðhús
-
Stærð 202 M²
-
Herbergi 6
-
Stofur 2
-
Svefnherbergi 4
-
Baðherbergi 3
-
Inngangur Sér
-
Byggingarár 1997
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr NEI
LÝSING
Opið hús: 02. október 2024 kl. 17:00 til 17:30.Opið hús: Blikahjalli 11, 200 Kópavogur. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 2. október 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Endaraðhús á tveim hæðum í botnlanga. Eign með fallegu útsýni og bakgarðurinn snýr í suður á grænt svæði. Einstök staðsetning!Eignin er skráð hjá HMS sem 202,2 m²,
- 3 svefnherbergi í dag en upprunalega fleiri (auðvelt að vera með 5 svefnherbergi)
- Fallegt útsýni
- 3 baðherbergi
- 3 bílastæði fyrir utan. Snjóbræðsla í bílastæðum
- Verðlaunagata árið 2021Nánari lýsing - Efri hæð:Gengið er inn í flísalagt
anddyri með nýlegum fataskáp.
Gestasalerni er við anddyrið. Upphengt klósett, vaskur og gluggi fyrir loftun.
Stofan er stór og opinn inn í eldhús. Hátt er til lofts og innfelld lýsing. Parket á gólfi.
Svalirnar snúa til suðurs og vesturs. Útgengt er á þær frá útskoti í stofunni.
Borðstofan er við eldhúsið og tengir saman stofu og eldhús.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu og stæði fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi.
Aukaherbergi. Frá stofu er auðvelt að setja upp vegg og útbúa
svefnherbergi 4 (við hliðina á anddyrinu).
Bílskúrinn er með góðri lofthæð. Inngönguhurð er rétt við aðalinnganginn inn í húsið.
Neðri hæð:Gengið er niður veglegann stiga sem er fyrir miðju eignarinnar.
Sjónvarpshol með flísum á gólfi og útgengt út í bakgarðinn. (á upprunalegri teikningu er þetta rými svefnherbergi og því hægt að bæta við 5 svefnherberginu hér).
Hjónaherbergið er rúmgott með fataherbergi. Gengið er inn í stórt en suite baðherbergi frá fataherberginu.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Stórt baðkar og sturtuklefi. Nýlegur handklæðaofn, upphengt klósett og skápar. Tveir vaskar og þvottaaðstaða.
Svefnhergbergi 2 er með parket á gólfi og innangengt í geymslu sem hægt er að nýta sem fataherbergi.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi og glugga sem snýr út í bakgarðinn.
Baðherbergi 2 er á milli svefherbergja 2 og 3. Þar er nýlegt upphengt klósett, vaskaeining og sturtutæki. Gluggi fyrir loftun.
Garðurinn er mjög gróinn og er lóðin við grænt svæði. Við húsið á neðri hæðinni er pallur. Fyrir framan húsið er hellulagt og er snjóbræðsla í bílastæðunum.
Frábær staðsetning þar sem fallegar gönguleiðir liggja við Kópavogslækinn. Leikskóli, grunnskóli og menntaskóli í göngufjarlægð. Þá er stutt í íþróttasvæði, samgöngur og alla verslun og þjónustu.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / [email protected]