800, Selfoss

Grundartjörn 14

93.500.000 KR
Einbýli
4 herb.
169 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Einbýli
  • Stærð 169 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 1997
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

Opið hús: 02. október 2024 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Grundartjörn 14, 800 Selfoss. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 2. október 2024 milli kl. 14:30 og kl. 15:00.

NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA [email protected]
SMELLTU HÉR OG SJÁÐU EIGNINA Í 3D (ekki er þörf á sérsöku forriti til þess)


RE/MAX, í samstarfi við Guðnýju Þorsteins löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fallegt og fjölskylduvænt einbýlishús að Grundartjörn 14 innst í botnlanga í rótgrónu og kyrrsælu hverfi. Húsið er á einni hæð og býður upp á 3 góð svefnherbergi auk bílskúrs. Samkvæmt fasteignaskrá er íbúðin 124,8fm og bílskúrinn 44,3fm, sem gerir heildarstærð eignarinnar 169,1fm.

Eignin skiptist í eftirfarandi rými:
Forstofu, herbergisgang, 3 svefnherbergi, baðherbergi, geymslu, þvottahús, eldhús, búr, stofu, borðstofu auk bílskúrs.

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð með góðum forstofuskápum og skúffum. Úr forstofu er komið inn í stórt og bjart rými með aukinni lofthæð
Eldhús: Er með góðu skápa- og skúffuplássi, bakaraofni í vinnuhæð ásamt innbyggð uppþvottavél. Úr eldhúsi er útgangur út á verönd. Við borðstofu er fallegur gluggi.
Búr: Er við hlið eldhúss með góðu geymsluplássi.
Stofa / borðstofa: Eru í sameiginlegu flæðandi björtu og opnu rými með aukinni lofthæð og útgangi út í fallegan garð.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með bæði sturtu og baðkari ásamt góðu skápaplássi.
Svefnherbergi: Eru 3, rúmgóð með fataskápum og parketi á gólfum.
Þvottahús: Er með skolvaski, inngangur er úr því og inn í bílskúr.
Geymsla: Er inn af bílskúr.
Bílskúr: Er innangengur af þvottahúsi, 44fm að stærð, með rafdrifinni hurð, geymslulofti og útgangi út í bakgarð.
Lóð og garður: Húsið stendur á 1026,9m skjólgóðri og gróinni lóð. Garðurinn er með fallegum trjágróðri ásamt grasfleti. Stór hellulögð innkeyrsla er fyrir framan bílskúrinn.
Grundartjörn 14 er fallegt hús staðsett í rólegum botnlanga. Virkilega góð eign með fallegum grónum garði. Í göngufæri er skóli, leikskóli, heilsugæsla, apótek, matsölustaðir, matvöruverslanir, íþróttahús og golfvöllur. Stutt er í náttúru og skemmtilegar gönguleiðir.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Guðný Þorsteins löggiltur fasteigna- og skipasali s: 771-5211 eða á netfangið [email protected].

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.