108, Reykjavík (Austurbær)

Ánaland 6

114.900.000 KR
Fjölbýli
5 herb.
143 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 143 M²
  • Herbergi 5
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 1983
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

Opið hús: 03. október 2024 kl. 17:00 til 17:30.

OPIÐ HÚS: Ánaland 6, 108 Reykjavík, jarðhæð - fimmtudaginn 3. október 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. ([email protected] / s.774 1477) kynna: 
Sjarmerandi, vel skipulagða og mikið endurnýjuð 5 herbergja jarðhæð með palli, bílskúr og tveimur bílastæðum í reisulegu 5 íbúða fjölbýli við Ánaland 6 í Fossvogi.

** SMELLIÐ HÉR til að bóka tíma í OPIÐ HÚS fimmtudaginn 3.október kl.17:00 **
** SMELLIÐ HÉR til að fá söluyfirlitið sent samstundis **


Eignin er samtals 143,5 m² og samanstendur af forsofu, eldhúsi, stofu / borðstofu með útgengi út í garð með sólpalli, herbergisgangi með 3 svefnherbergjum, baðherbergi, geymslu í sameign ásamt þvottahúsi, hjóla-og vagnageymslu og bílskúr (21,8 m²).

** SMELLTU HÉR og skoðaðu HÚSIÐ í 3-D, þrívíðu umhverfi.**

Nánari lýsing:
Stigagangur: Snyrtilegur stigagangur og þaðan er aðgengi annarsvegar út í garð að aftanverðu og hinsvegar inn í geymslugang, þvottahús og hjóla/vagnageymslu.
Forstofa: Fataskápar, spegill og flísar á gólfi.  
Eldhús: Vönduð viðar innrétting og borðkrókur. Mjög gott skápapláss. Korkur á gólfi. Sérinngangur inn í íbúð og hægt að nota sem slíkan ef vilji er fyrir því. 
Stofa / Borðstofa : Rúmgott og opið rými með parketi á gólfi. Stofan er björt og rúmgóð með gluggum til austurs, suðurs og vesturs og úr borðstofu er útgengi út í garð með skjólgóðum sólpalli.
Herbergisgangur: Vinnuaðstaða og parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Ágætt herbergi með fataskápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I & II: Fataskápur og parket á gólfi. 
Baðherbergi:  Flíslagt í hólf og gólf.  Rúmgóð sturta, upphengt salerni, handlaug í góðri innréttingu með góðu skápaplássi og handklæðaofn. Gluggi með opnanlegu fagi auk lofttúðu.  
Geymsla: Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús og hjóla-/vagnageymsla.
Bílskúr: Er 21,8 m² með hita, rafmagni og glugga ásamt tveimur bílastæðum.

Fjölbýlið Ánaland 6 var byggt árið er 1983. Í húsinu eru 5 íbúðir, allar svipaðar að stærð og er húsið hluti af skemmtilegum og fjölskylduvænum íbúðarkjarna í Fossvoginum, frábærlega staðsett framarlega í hverfinu og í þægilegu göngufæri við verslanir og þjónustu, leikskóla, skóla og verslanir ásamt sundlaug og útivistaparadísina í Fossvogsdalnum.
Gott aðgengi er að almenningssamgöngum og stutt í stofnbrautir.

Ástand eignar: 
Húsið er í góðu ástandi og hefur verið vel viðhaldið í gegnum tíðina.
Stigahús og aðkoma er snyrtileg og það sama má segja um sameign alla. 
Innviðir hafa verið endurnýjaðir í gegnum árin. Lagnir og rafmagn yfirfarið og endurnýjað eftir þörfum. 
Nýlegt parket á á öllu alrými og svefnherbergjum. Eldhús var endurnýjað fyrir einhverjum árum ásamt hurðum og einnig var baðherbergi endurnýjað frá A-Ö.
Að utanverðu er sömu sögu að segja. Árið 2016 var húsið var múrviðgert og málað, tréverk einnig yfirfarið og málað. Þak var yfirfarið og málað árið 2014. Bílskúrshurðir voru endurnýjaðar fyrir nokkrum árum.

Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið. 

Allar nánari upplýsingar veitir Hera Björk, löggiltur fasteignasali - [email protected] / s.774 1477

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali. 4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
__________________________
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.

Ég hef starfað við Fasteignasölu frá janúar 2017 þegar ég ákvað að venda mínu kvæði í kross og hefja störf sem fasteignasali. 
Ég legg mig fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá mér færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga. Hafðu samband í síma: 774-1477 eða á netfangið [email protected]