RE/MAX Ísland logo
Opið hús:07. sept. kl 17:00-17:30
Skráð 3. sept. 2026
Söluyfirlit

Fagrihjalli 46

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
222.1 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
144.900.000 kr.
Fermetraverð
652.409 kr./m2
Fasteignamat
146.500.000 kr.
Brunabótamat
118.450.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Þórdís Björk Davíðsdóttir
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1991
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2060309
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar- 2023 skipt um lekaliða
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
**  HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA  **
 
Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:
Rúmgott og fjölskylduvænt 222,1 m² rað-/parhús á þremur hæðum með innbyggðum bílskúr, björtum og rúmgóðum vistarverum, arni og góðum útisvæðum. Eignin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, fjögur svefnherbergi í dag og möguleika á að útbúa fimmta herbergið. Stórir gluggar setja sterkan svip á húsið og veita góða náttúrulega birtu. Tvær góðar verandir eru við húsið og sameiginlegt leiksvæði er á sameiginlegri lóð húsanna Fagrihjalli 42 - 60.
Húsið er á þremur hæðum og skipulag þess hentar sérlega vel fjölskyldufólki. Bílskúr er bæði innan- og utangengur, með rafdrifinni bílskúrshurð, auk þess sem tvö bílastæði eru í innkeyrslunni.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 222,1 fm sem skiptist í íbúðarhúsið 186,5 fm og innangengur bílskúr ásamt geymslu samtals 35,6 fm.
 Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is


SMELLTU HÉR til að sækja öll gögn um eignina
 
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagna

HELSTU ATRIÐI EIGNAR
• Fjögur svefnherbergi í dag en möguleiki á fimmta herberginu
• Tvö baðherbergi auk salernis inn af hjónaherbergi
• Rúmgóð stofa og borðstofa í samliggjandi opnu og björtu rými
• Arinn í stofu
• Stórir gluggar, mikil birta og útsýni
• Tvær skjólgóðar verandir - frá eldhúsi og borðstofu 
• Bílskúr er bæði innan- og utangengur
• Tvö bílastæði í innkeyrslu
• Sameiginlegt leiksvæði á lóð húsanna Fagrihjalli 42 - 60
-----
Nánari lýsing eignar:
1. HÆÐ - forstofa, miðrými, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús.
Forstofa: Gengið er inn í flísalagða forstofu með fataskápum.
Miðrými: Frá forstofu er komið inn í opið og rúmgott miðrými með flísum á gólfi. Undir stiganum hefur verið útbúið kósý leiksvæði fyrir yngri börn sem nýtir rýmið á skemmtilegan hátt. Svæðið má jafnframt nýta sem geymslu eftir þörfum.
Herbergi I: Gott herbergi með parketi á gólfi.
Herbergi II: Gott herbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuaðstöðu.
Þvottahús: Mjög rúmgott þvottahús með góðu vinnu- og geymsluplássi.
---
2. HÆÐ - eldhús, baðherbergi, stofa og borðstofa.

Eldhús: Rúmgott eldhús með flísum á gólfi, hvítri innréttingu og graníti borðplötum. Úr eldhúsinu er útgengt á skjólgóða viðarverönd í garðinum, sem myndar góða tengingu milli eldhúss og útisvæðis.
Skipulag eldhússins býður jafnframt upp á þann möguleika að stúka hluta þess af og útbúa þar viðbótarherbergi.
Baðherbergi: Baðherbergi er með baðkari og er flísalagt í hólf og gólf.
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa eru í samliggjandi rými. Parket er á gólfi en flísar eru í kringum arin sem skapar hlýlega og notalega stemningu í rýminu. Mikil lofthæð og stórir og miklir gluggar hleypa ríkulegri náttúrulegri birtu inn í rýmið.
Úr borðstofu er útgengt á stóra afgirta verönd sem er ofan á þaki bílskúrsins. Frá veröndinni liggur stigi niður á jarðhæð við hlið bílskúrsins og því er gott aðgengi milli hæða og útisvæða.
---
3. HÆÐ -  tvö svefnherbergi auk salernis.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með mikilli lofthæð, góðum fataskápum og parketi á gólfi. Inn af hjónaherberginu er lítið gesta salerni. Rennihurð aðskilur það frá herberginu.
Barnaherbergi: Bjart barnaherbergi með gluggum á tvo vegu og parketi á gólfi.
STIGAHÚS - Stórir og miklir gluggar til austurs eru í stigahúsinu og hleypa mikilli dagsbirtu inn í húsið. Birtan frá gluggunum setur fallegan svip á tengingu hæðanna og gerir stigahúsið bjart og opið.
BÍLSKÚR OG GEYMSLA: Bílskúr og geymsla eru samtals 35,6 m². Bílskúrinn er bæði innan- og utangengur og með rafdrifinni bílskúrshurð. Tvö bílastæði eru í innkeyrslu fyrir framan húsið.
LÓÐ OG SAMEIGN : Lóð hússins er um 803 fm og nýtist vel í kringum húsið. Hlið er norðan megin við húsið og því hægt að ganga þar upp að Hlíðarhjalla. Samkvæmt teikningum á lóðarleigusamningi er sameign húsanna við Fagrahjalla 42–60 leiksvæði og bílastæði.
---
Fagrihjalli 46 er rúmgóð og fjölskylduvæn eign með skemmtilegu skipulagi á þremur hæðum, góðum útisvæðum og mikilli birtu. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu í dag og möguleiki er á því fimmta, sem gefur eigninni góða aðlögunarmöguleika fyrir fjölskyldur af ólíkum stærðum. Arininn, stórir gluggarnir og góð tenging við verandirnar skapa hlýlegt og bjart heimili þar sem bæði inni- og útirými nýtast vel.
 
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.

 
Heimasíða RE/MAX
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
 
35.6 m2
Fasteignanúmer
2060309
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Holtagerði 4
200 Kópavogur
210.2 m2
Hæð og ris
524
642 þ.kr./m2
135.000.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Andarhvarf 7C
203 Kópavogur
187.2 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
423
721 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hlíðarhjalli 24
200 Kópavogur
205.1 m2
Tvíbýli
514
731 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin