RE/MAX & BJARNÝ BJÖRG Lgf. ( 694-2526 / bjarny@remax.is ) kynna:Fallegt og vel skipulagt 4ra herbergja parhús á Selfossi. Húsið er steypt og timburhús, klætt að utan með lituðu járni. Heildarstærð eignarinnar er 130,2 m2 að stærð og er sambyggður bílskúr 29,2 m2 þar af.
Eignin er vel staðsett, miðsvæðis á Selfossi. Allar nánari upplýsingar veitir: Bjarný Björg Arnórsdóttir lgf., í 694-2526 / bjarny@remax.is ** SMELLTU HÉR og skoðaðu EIGNINA í 3-D, þrívíðu umhverfi.** Nánari lýsing:Húsið er hefðbundið timburhús sem er klætt með lituðu járni og timbri. Húsið skiptist í anddyri, bílskúr, eldhús, borðstofa, stofa, þvottahús, þrjú góð svefnherbergi og baðherbergi.
Anddyri: er með góðum skápum og flísum á gólfi.
Eldhús: Eldhúsinnréttingin er með góðu skápaplássi, pláss fyrir uppþvottavél og góður borðkrókur með glugga.
Borðstofa / Stofa: borðstofa og stofa eru samliggjandi í alrými þar sem hátt er til lofts, svala hurð er í stofunni þar sem útgengið er út í garð á pall og góðan garð.
Herbergi 1# er rúmgott með parket á gólfi og fataskápum.
Herbergi 2# er rúmgott með parket á gólfi og fataskápum.
Hjónaherbergið 3# er stórt með góðum skápum og parket á gólfi.
Þvottahúsið er flísalagt, með góðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Baðherbergi er flísalagt, innbyggt vegghengt salerni. Baðinnrétting er rúmgóð og baðkar með sturtu.
Suðurlóð með palli og heitum potti. Tölvustýrður heitavatnspottur með hitaþræði (takki inn á baðherbergi til þess að fylla pott)
Stórt malbikað bílaplan Framkvæmdasaga samkvæmt seljanda:
Árið 2026
- Þak grunnað og málað
Árið 2025
- Nýir gluggar tré/ál (Rationel)
- Ný bílskúrshurð með rafmagnsopnara + ný gönguhurð í bílskúr
- Ný svalahurð
- Ný einangrun og öndunardúkur
- Ný báruklæðning
- Nýjar flísar – eldhús + forstofa + þvottahús
- Bætt við innréttingu undir þvottavél + þurrkara, er í vinnuhæð
- Ný Rafmagnstafla (3 fasa rafmagn)
Árið 2023
- Baðherbegi tekið í gegn (innrétting, wc, baðkar + gler + handlaug + blöndunartæki )
- LED lýsing í bílskúr
Áður en núverandi eigandi kaupir var búið að :
- Nýjar innihurðar
- Nýja eldhúsinnréttingu
- Nýjar innréttingar í þvottahús
- Loftaþiljur í alrými + forstofu
- Skipt um gólfefni
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.