RE/MAX / Ágúst Ingi Davíðsson / Magnús Már Lúðvíksson kynna:Vel skipulagða 3ja herbergja íbúð í steinsteyptu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað í 112 Reykjavík.
SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D HÉR (Með og án húsgagna)
Skv. HMS er birt stærð eignarinnar samtals 88,7 m².
- Sérinngangur
- 2 svefnherbergi
- Rúmgóð verönd
- Sameignilegar rafhleðslustöðvar á bílastæði
- Fjölskylduvænt og rólegt hverfi
- 112 ReykjavíkEignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, samliggjandi eldhús/borðstofu/stofu og þvottahús.
Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð, þaðan er gengið inn í alrými eignarinnar.
Stofa og borðstofa eru í opnu og samliggjandi rými með gluggum sem gefa góða birtu.
Eldhús er með bæði efri og neðri skápum og vel skipulögðu vinnurými. Í innréttingu er eldavél, gufugleypir, pláss fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Frá eldhúsi er gengið út á
verönd sem býður upp á frábæra aðstöðu til útivistar og samveru.
Svefnherbergi #1 er parketlagt og er með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi #2 er parketlagt með fataskáp.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og búið baðkari, upphengdu salerni, og innréttingu.
Þvottahúsið er með dúk á gólfi.
Um er að ræða einstaklega vel staðsetta fjölskyldueign á vinsælum stað þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, verslun og helstu þjónustu.
Frekari upplýsingar veita:Ágúst Ingi Davíðsson, löggiltur fasteignasali í síma 787-8817 / agust@remax.is
Magnús Már Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 / maggi@remax.is