RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg 128,4 fm. þriggja herbergja hæð í þríbýli með sérinngangi og bílskúr á einum besta stað í Laugardalnum. Stór og gróinn sameiginlegur garður. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Þvottahús er staðsett í sameign. Bílskúr og geymsla íbúðar á lóð og sér bílastæði fyrir framan.
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu á undanförnum árum, m.a. endurnýjun á þaki, gluggum og gleri, skólplögnum, raflögnum og rafmagnstöflu. Á þessu ári verður stigagangur og þvottahús einnig endurnýjað samkvæmt samþykktum framkvæmdum sem greiddar verða úr hússjóði.
Íbúðarými er skráð 79,1 fm., bílskúr 37,0 fm. og geymsla í bílskúr 12,3 fm. Samtals birt stærð eignarinnar 128,4 fm.
KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.isFalleg og vel staðsett eign í rólegu og eftirsóttu hverfi í Laugardalnum. Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla. Líkamsrækt og sundlaug Laugardals í næsta nágrenni.Nánari lýsing: Falleg aðkoma er að húsinu, íbúðin er með sérinngangi þar sem gengið er upp steyptar útitröppur norðanmegin. Íbúðin er björt og vel skipulögð með aukinni lofthæð og fallegum listum. Sameign er snyrtileg og úr íbúð er einnig innangengt niður í sameign.Forstofa með fatahengi, gengið inn hol sem tengir saman helstu vistarverur. Úr forstofu er hurð þar sem gengið er niður í sameign.
Eldhús er með gráum og stílhreinum innréttingum með tengi fyrir uppþvottavél, ljós viðarborðplata og góðir efri skápar. Helluborð, bökunarofn og gufugleypir, endurnýjað ´24.
Stofa er í björtu og opnu rými við eldhús. Parket á gólfum.
Svefnherbergin eru tvö. Hjónaherbergi er mjög rúmgott og annað svefnherbergi minna. Parket á gólfum.
Baðherbergi er með hvítum innréttingum og sturtubaðkari. Góður opnanlegur gluggi og gólf er flísalagt. Gólf parketlagt en flísalagt að hluta.
Þvottahús er staðsett í sameign, hver íbúð með sinn mæli. Nýlega er búið að flota gólf að hluta en fyrirhugað er að klára flot og múrviðgerðir. Búið er að samþykkja að lakka gólfið og mála þvottahúsið og búið að ráðstafa fjármunum úr hússjóð í það verkefni.
Garður er sameiginlegur, stór og gróinn. Lóðin um 750 fm. að stærð.
Bílskúr er 37,0 fm. að stærð. með hita og köldu vatni. Mjög stór og rúmgóður, óeinangrað loft.
Inn af bílskur er geymsla um 12,3 fm. að stærð, köld en ofnalagnir til staðar (ótengdur ofn getur fylgt).
Bílastæði fyrir framan bílskúr.
Framkvæmdir og viðhald2026 verður þvottahús yfirfarið, múrviðgert og gólf flotað (framkvæmdir í vinnslu). Búið er að samþykkja framkvæmdi í þvottahúsi og á stigagangi. Þvottahús verður málað og gólf lakkað. Stigagangur verður málaður og teppalagður. Búið er að samþykkja tilboð í bæði málun og teppalögn og verður sú framkvæmd greidd úr hússjóði. Einnig verður skipt um handrið í sameign.
2026 var skólp endurnýjað, settar plastlagnir undir hús og út í götu, nýr brunnur. Skipt um rafmagnstöflu í sameign.
2023 var útigeymsla tekin í gegn, múrviðgert og málað, sett nýtt þak (burðarvirki, einangrun, klæðning, þakpappi og þakrennur).
2019 var þakjárn endurnýjað og þaksperrur eftir þörfum. Gluggar og gler á austurhlið endurnýjaðir.
2011 voru gluggar og gler endurnýjaðir, fyrir utan austurhlið og sameign.
Staðsetning er einstaklega góð og miðsvæðis. Laugarnes- og Laugalækjarskóli eru í nokkurra mínútna fjarlægð, World Class og sundlaug Laugardals ásamt íþróttasvæði Þróttar og öllu því sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða. Verslun og þjónusta skammt frá og stutt í stofnbrautir. Fyrirhugað fasteignamat 2027 er kr. 90.550.000,-.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.