RE/MAX Ísland logo
Skráð 22. maí 2026
Söluyfirlit

Bræðratunga 13

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
293.7 m2
9 Herb.
6 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
167.700.000 kr.
Fermetraverð
570.991 kr./m2
Fasteignamat
157.900.000 kr.
Brunabótamat
131.350.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Þórdís Björk Davíðsdóttir
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1968
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Tveir inngangar
Fasteignanúmer
2059373
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar/Neysluv.lagnEldhús 2025
Raflagnir
Endurnýjað að mestu á efri hæð
Frárennslislagnir
Myndaðar ca 4-5 ár og þá í lagi
Gluggar / Gler
Endurnýjað að mestu sunnanmegin
Þak
Endurnýjað sjá texta í lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður
Upphitun
Hitaveita / gólfhiti að hluta sjá lýsingu
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Baðherbergi neðri hæðar er ófrágengið. Það var verið að laga leka frá niðurfallsröri eldhússins í útvegg og það verður múrað fyrir það fyrir afhendingu eignar.
Gallar
Það hefur verið leki í stofuvegg leiguíbúðar en sá veggur snýr að næsta húsi. Búið er að sprauta þéttiefni í allann vegginn sem nágranninn gerði og sést það vel að utan.
**  HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA  **
 
Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:
Endaraðhús á tveimur hæðum með aukaíbúð til útleigu á vinsælum stað í Suðurhlíðum Kópavogs. Eignin er samtals 293,7 fm að stærð og þar af er bílskúr 26,8 fm. Bílskúr er ekki innangengur.
Eignin skiptist í rúmgóða aðalíbúð á efri og neðri hæð ásamt 2ja–3ja herbergja aukaíbúð með sérinngangi frá suðurgarði hússins. Aukaíbúðin samanstendur af eldhúsi, baðherbergi, stofu, svefnherbergi og þvottahúsi og býður upp á góða útleigumöguleika.
Aðalinngangur eignarinnar er frá götu inn á efri hæð hússins en aðalinngangur í útleiguíbúð er úr frá garði og þá gengið eftir hlið hússins.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 293,7fm sem skiptist í íbúðarrými 186,9 fm, leiguíbúð ca 80,0 fm og bílskúr 26,8 fm.

SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT sent til þín samstundis
 
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagna


Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is
 
Nánari lýsing eignar:
Efri hæð:
Forstofa er með fatahengi og steini á gólfi.
Eldhús hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt með hvítri innréttingu frá IKEA og parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi í opnu og björtu rými með stórum útsýnisgluggum til vesturs, parketi á gólfi og útgengi á suðursvalir. Af svölum er timbur stigi niður í skjólgóðan garð.
Herbergi I er hjónaherbergi, rúmgott með opnum fataskápum frá IKEA, glugga til suðurs og parketi á gólfi.
Herbergi II, III og IV eru barnaherbergi í góðri stærð, án fataskápa. Herbergi II með glugga til suðurs en III og IV með gluggum til norðurs og parketi á gólfi
Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, handklæðaofni, innréttingu undir handlaug, upphengdu salerni og glugga til loftunar. Flísar eru á gólfi og veggjum.
Bílskúr er með upprunalegri innkeyrsluhurð en hægt er ganga inn í bílskúrinn af svölum sunnan megin. Gólfið er málað, heitt og kalt vatn og rafdrifin hurð. Panill er í lofti.
Stigi niður á neðri hæð er úr timbri.
Neðri hæð:
Á neðri hæð er stór sjónvarpsstofa með parketi á gólfi.
Herbergi V er mjög rúmgott með parketi á gólfi og glugga til suðurs.
Stórt þvottahús er með vinnuborði, hillum og máluðu gólfi.
Baðherbergi á neðri hæð hefur verið tekið niður að mestu leyti og er einungis salerni þar. Segja má að það þarfnist standsetningar.
Gengið er út í garð úr sjónvarpsstofu í gegnum forstofu/gang sem nýtist einnig aukaíbúð.
Aukaíbúð í útleigu - 2ja–3ja herbergja
Sérinngangur er í aukaíbúð frá suðurgarði hússins. Komið er inn í gang sem er sameiginlegur aðalíbúð og leiguíbúð. Leiguíbúðin nýtir ganginn sem forstofu og þar er fatahengi.
Eldhús er með ágætis innréttingu með flísum á milli skápa glugga til suðurs og parketi á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og gluggum til suðurs og útgengi í garðin.
Svefnherbergið er rúmgott með parkei á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari, hvítri innréttingu undir og við handlaug, salerni
þvottahúsi.

Framkvæmdir seljenda á eigninni:
2016 – Gler í aukaíbúð endurnýjað ásamt öllu gleri á neðri hæð hússins, utan hurðar út í garð úr leiguíbúð. Svalahurð á efri hæð endurnýjuð ásamt litlu hurðinni af svölum inn í bílskúr.
2021 – Lagnir myndaðar og reyndust þá í lagi.
2021 – Þak endurnýjað, skipt um þær sperrur sem þurfti og nýr þakpappi bræddur.
2021 – Loft á efri hæð endurnýjuð, ný einangrun og ný loftaklæðning.
2021 – Raflagnir endurnýjaðar á efri hæð, að undanskildu herbergi III, hægra megin við baðherbergi.
2022 – 2024 – Gluggar á suðurhlið hússins endurnýjaðir.
2024 – Parket lagt á efri hæð, frá Birgisson. Gólflistar hafa ekki verið settir.
2024 – Innihurðir á efri hæð endurnýjaðar, frá Birgisson.
2024 – Neysluvatnslagnir í eldhúsi endurnýjaðar.
2025 – Eldhús endurnýjað að fullu.
2025 – Gólfhitalagnir settar í eldhús, stofu og forstofu.

Um er að ræða rúmgott endaraðhús á eftirsóttum stað í Suðurhlíðum Kópavogs þar sem möguleiki er á góðum leigutekjum af aukaíbúð. Eignin býður upp á rúmgóð og björt rými, skjólgóðan suðurgarð, góða fjölskylduskipan og frábæra staðsetningu þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun, þjónustu og fallegar gönguleiðir. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.

 
Heimasíða RE/MAX
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
 
26.8 m2
Fasteignanúmer
2059373
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin