RE/MAX Ísland logo
Opið hús:07. apríl kl 17:00-17:30
Skráð 1. apríl 2026
Söluyfirlit

Grandavegur 42G

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
86.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
83.900.000 kr.
Fermetraverð
968.822 kr./m2
Fasteignamat
80.500.000 kr.
Brunabótamat
58.930.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2016
Lyfta
Garður
Tveir inngangar
Fasteignanúmer
2353015
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Upprunalegt (2016)
Raflagnir
Upprunalegt (2016)
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2016)
Gluggar / Gler
Upprunalegt (2016)
Þak
Upprunalegt (2016)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, yfirbyggðar
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sjá "Yfirlýsigu húsfélags" við skoðun. 
Kvöð / kvaðir
Almenn kvöð um lagnir RVK og kvöð um gólfefni til verndar hljóðvist. 
RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. (herabjork@remax.is  / 774-1477 ) kynna: 
Afar glæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 1.hæð (jarðhæð) í vönduðu fjölbýli frá 2016 við Grandaveg 42G í Vesturbænum,  Hér er um að ræða eign sem sameinar nútímalega hönnun, vönduð efni og frábæra staðsetningu. 

- Eignin getur verið laus við kaupsamning.
- Vandaðar innréttingar og skápar frá HTH.
- Verðlaunagarður og snjóbræðsla á gönguleiðum
- Glæsileg og vel hönnuð sameign með lyklalausu aðgengi.
- Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu með hleðslustöð.
- Yfirbyggð verönd sem nýtist allt árið með beinu aðgengi út í garð. 


** SMELLIÐ HÈR fyrir nánari upplýsingar og/eða til að bóka tíma í skoðun **
** SMELLIÐ HÉR til að skoða söluyfirlit & fylgigögn **


Eignin er samtals 86,6 m² samkvæmt Þjóðskrá Íslands og skiptist í rúmgóða forstofu, tvö svefnherbergi, gott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi í opinni og bjartari heild, fallegt baðherbergi með þvottaaðstöðu og yfirbyggða verönd. 

** SMELLTU HÉR og skoðaðu HÚSIÐ í 3-D, þrívíðu umhverfi **

Nánari lýsing:

Forstofa: Gengið inn úr sameiginlegum snyrtilegum stigagangi í rúmgóða forstofu með fallegum flísum á gólfi. Rúmgóður fataskápur frá HTH sem nær upp í loft með extra góðu geymsluplássi. Úr forstofu er gengið í inn í alrými með vel skipulögðu flæði. 
Alrými: Rúmgott og bjart parketlagt rými. Í eldhúsi er vönduð innrétting frá HTH með dökkum neðri skápum og hvítum efri skápum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél frá AEG, vönduðum blöndunartækijum frá Hansgrohe og vask frá Pyramis. Stofa & borstofa eru með góðum gluggum til suðurs, Þaðan er gengið út á yfirbyggða verönd í suðvestur með útsýni yfir rólegan og fallegan garð – fullkomið rými til að njóta síðdegissólar og sumarkvölda.
Hjónaherbergi: Sérlega rúmgott og notalegt rými með harðparketi á gólfi og sexföldum HTH fataskáp í svartbæsaðri eik, sem veitir mikið geymslupláss.
Svefnherbergi: Rúmgott með harðparketi á gólfi og tvöföldum HTH fataskáp. Herbergið er bjart og hentar vel sem barnaherbergi eða skrifstofa.
Baðherbergi: Stílhreint baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum við sturtu og salerni. Rúmgóð "walki-in" sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Vönduð innrétting frá HTH undir vaski og til hliðar við spegil, sem er með fallegri hulinni lýsingu. Blöndunartæki frá Hansgrohe. Innfelldur skápur með rennihurðum sem hýsir skolvask. þvottavél og þurrkara. 
Verönd/Sólskáli: Gengið úr stofu út á sólríka yfirbyggða verönd (10,2 m²) sem snýr í suðvestur og þaðan er aðgengi beint út í rólegan og fallegan verðlauna garð með grænu svæði og leiktækjum.  Bætir verulega við nýtingu og lífsgæði og er fullkomið rými til að njóta síðdegissólar og kvöldkyrrðar. Veröndin er ekki inni í skráðri fermetratölu.
Bílastæði: Er sérmerkt og virkilega rúmgott í lokaðri bílageymslu á efri hæð bílakjallara. Hleðslustöð er uppsett við stæðið. Tvö bílaþvottastæði og 19 gestastæði. 
Geymsla: Rúmgóð 6,9 m² sérgeymsla á jarðhæð með mjög góðri lofthæð, hillum, rafmagnstengi og útloftun. 
Sameign: Er einstaklega vel hönnuð, glæsileg og snyrtileg með lyklalausu aðgengi að öllum rýmum og sjálfopnandi hurðar í anddyrum og inn í hús úr bílakjallara. Í sameign er verulega rúmgóð vagna- og hjólageymsla. Á milli húsanna að Grandavegi 42 er fallegur verðlaunagarður með snjóbræðslu í gangstétt, stigum og öðrum stéttum.

Eignin er vel staðsett í þessum vinsæla hluta Vesturbæjarins og býður upp á fjölbreytta þjónustu og afþreyingu í næsta nágrenni, stutt frá skólum, íþróttastarfsemi, miðbæ Reykjavíkur, fjölbreyttum verslunum og veitingastöðum á Grandanum. Í næsta nágrenni er hin vinsæla Vesturbæjarlaug og við strandlengjuna má finna fallegar gönguleiðir. 
Hér er um að ræða eign sem hentar vel fyrir litla fjölskyldu, pör og/eða þá sem vilja njóta þæginda og lífsgæða á einum vinsælasta stað borgarinnar. Eign sem vert er að skoða.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Hera Björk löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 eða á netfangið herabjork@remax.is 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
__________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?
Ég hef starfað við fasteignasölu síðan árið 2016 og legg mig fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá mér færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga. Hafðu samband í dag í síma 774-1477  eða á netfangið herabjork@remax.is
Byggt 2017
Fasteignanúmer
2353015
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
E5
Númer eignar
5
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.030.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Skyggnisbraut 7
113 Reykjavík
86.6 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
923 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Njálsgata 49
101 Reykjavík
106.5 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
312
797 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Opna eign
Opið hús:04. ágúst kl 17:00-17:30
Image
Opna eign
Barónsstígur 6
101 Reykjavík
82.6 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
967 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Selásbraut 108 íbúð 402
110 Reykjavík
87 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
918 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin