Vernharð Þorleifsson lgf. og Magga Gísladóttir lgf. kynna:Vel staðsett og rúmgott 284,8 fm einbýlishús með einstaklega fallegri, sólríkri og skjólsælli suðurlóð.Eignin stendur við rólegan botnlanga í grónu og fjölskylduvænu umhverfi þar sem stutt er í skóla og aðra þjónustu.
Húsið er á þremur hæðum og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Við mælum með að skoða eignina í þrívídd til að átta sig betur á skipulagi hennar og þeim möguleikum sem hún býður upp á.
Skoða eignina í 3D hérFrekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.isKíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða
á InstagramNánari lýsing:
AðalhæðAnddyri: Komið er inn í anddyri með fataskáp. Þaðan er gengið í forstofuhol með stiga milli hæða. Gestasalerni er á hæðinni.
Eldhús: Fallegt, bjart og vel búið eldhús sem var endurnýjað árið 2007. Hvít háglansinnrétting með granítborðplötum, góðu skápaplássi og glæsilegri eyju. Eldhúsið er með vönduðum Miele-heimilistækjum, meðal annars bakaraofni, gufuofni, örbylgjuofni og innbyggðri kaffivél. Einnig eru tvöfaldur ísskápur, gashelluborð, háfur, innfelld uppþvottavél og vínskápur. Úr eldhúsinu er útgengt á verönd og baklóð.
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með samliggjandi borðstofu sem er upp eitt þrep frá stofunni. Úr stofunni er útgengt á suðvestursvalir þar sem hægt er að ganga niður í garð.
Bílskúr: Innangengt er í bílskúr úr húsinu. Bílskúrinn er með epoxy á gólfi, geymslulofti og gönguhurð. Inn af bílskúrnum er þvottahús.
Efri hæðSvefnherbergi: Á hæðinni eru þrjú svefnherbergi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með sér fataherbergi og útgengi á svalir.
Baðherbergi: Rúmgott og vel búið baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Falleg innrétting með vaskaskáp og tveimur vöskum, uppsettur speglaskápur, baðkar og stór sturta. Vegghengt salerni, handklæðaofn og gluggi.
KjallariKjallarinn býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og er meðal annars möguleiki á að útbúa þar aukaíbúð.
Alrými: Stórt og opið rými með útgengi í rúmgóða sólstofu. Úr sólstofunni er gengið beint út á baklóðina.
Baðherbergi: Með sturtuklefa, gufubaði (saunu), vaskaskáp og handklæðaofni.
Herbergi: Rúmgott herbergi með viðbótarrými innaf þar sem lofthæð er lægri að hluta. Það rými er ekki innifalið í skráðum fermetrum eignarinnar.
Önnur rými: Á hæðinni er einnig gluggalaust herbergi með útloftun ásamt geymslurými á gangi og undir stiga.
Parket og flísar eru á flestum gólfum eignarinnar. Gólfhiti er á aðalhæð.
Lóð og umhverfiBaklóðin er án efa einn af helstu kostum eignarinnar. Einstaklega glæsileg, gróin og vel hönnuð suðurlóð þar sem mikil áhersla hefur verið lögð á nýtingu, skjól og góða aðstöðu til að njóta sólríkra daga.Garðurinn er hannaður af Stanislav og einkennist af fallegum gróðri, viðarpöllum og skjólveggjum sem skapa notalegt og fjölbreytt útisvæði. Á lóðinni er einnig heitur pottur.Snjóbræðsla er í bílaplani.Að sögn seljanda var þakið skoðað og yfirfarið þegar hann keypti húsið árið 2022 og var það metið í góðu ástandi. Í ágúst 2023 var timburverk þaksins málað.
Í sumar voru allar þakrennur hreinsaðar og yfirfarnar og reyndist ekki þörf á viðgerðum.
Frárennslislagnir voru einnig myndaðar og ekki voru gerðar athugasemdir við ástand fráveitulagna.
Hér er um að ræða rúmgott fjölskylduhús með góðu skipulagi, fjölbreyttum nýtingarmöguleikum og einstaklega fallegri útiaðstöðu.
Staðsetningin í rólegum botnlanga, rétt um 150 m bæði í leikskólann og grunnskólann ásamt glæsilegri suðurlóð gerir eignina að flottri fjölskyldueign.
Allar frekari upplýsingar veita Vernharð í síma 699 7372/venni@remax.is og Magga 698 7494/magga@remax.is