Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herb. íbúð að Frostafold 36 í Reykjavík. Húsið er lágreist, innst í botnlanga, garðurinn afgirtur og aftan við hús er grænt svæði til útivistar. Húsið hefur m.a. nýlega verið múrviðgert og málað. Út frá stofu eru skjólgóðar suðursvalir. Stutt er í leik- og grunnskóla, falleg útivistarsvæði og helstu þjónustu og verslanir. Allt í göngufæri og undirgöng eru m.a. undir Fjallkonuveg.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Heildareignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 101,9 m2. *VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!
Söluyfirlit má nálgast hérNánari lýsing:
Forstofa er inn af snyrtilegri teppalagðri sameign. Gengið er upp eina hæð. Innan íbúðar eru marmaraflísar á rúmgóðri forstofu. Þaðan er gengið inn á parket sem flæðir um flest rými íbúðar.
Stofa er með gluggum og útgengi út á svalir til suðurs. Parket á gólfi stofu.
Eldhús er með góðu plássi fyrir eldhúsborð og stóla. Á gangvegi inn í eldhús er búrskápur. Eldhúsinnrétting er "U" laga og með stæði og tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp. Bakaraofn, helluborð og vifta. Á milli efri og neðri skápa eru hvítar flísar. Á gólfi er parket. Gluggar eru á tvo vegu.
Möguleki er að opna á milli eldhúss og stofu (léttur veggur) og útbúa
auka herbergi úr hluta af eldhúsi. Þar er opnanlegt fag til vesturs.
Herbergi I er inni af herbergisgangi. Gluggi er í spíss og snýr til vesturs. Parket á gólfi.
Herbergi II er stærra herbergið. Hvítir/viðar fataskápar á einum vegg. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vítt er til veggja. Innrétting, líkt og í eldhúsi. Baðkar, salerni og ofn. Gluggi með opnanlegu fagi til vesturs.
Þvottahús er innst á herbergisgangi. Stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hillur á veggjum. Gluggi er innst í rýminu. Brúnar gólfflísar.
Geymsla er innan íbúðar.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á götuhæð (1. hæð).
Garður er afgirtur. Handan við garðinn til suðurs er almenningsgarður með leiktækjum.
Bílastæði eru í sameign úti á lóð. Snjóbræðsla er undir stétt frá bílastæði og að húsi.
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-