101, Reykjavík (Miðbær)

Hverfisgata 92A

108.900.000 KR
Fjölbýli
4 herb.
122 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 122 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 2021
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

RE/MAX /  Júlían J. K. Jóhannsson aðstoðarmaður fasteignasala (sími 823 2641 & [email protected]) og Hörður Björnsson Lgf. kynna: glæsilega 122,2 m² 4 herbergja íbúð með sérmerktu stæði í bílageymslu í nýju húsi, byggðu 2021, við Hverfisgötu í miðbæ Reykjavíkur. Eignin er með gólfhita, innfelldri lýsingu, tilbúin fyrir snjallíbúðarkerfi, vönduðum innréttingum, gólfefnum og tækjum og borðplötum úr kvartsteini. Gengið er beint út úr stofu á sérafnotareit í suður í lokuðum inngarði en frá Hverfisgötu er íbúðin á annarri hæð. 

Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á [email protected] - Júlían J. K. aðstoðarmaður fasteignasala í lögildingarnámi

3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR -  3D


FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.
 
  • Glæsileg íbúð í mjög nýlegu húsi (2021).
  • 3 svefnherbergi.
  • Sérafnotareitur í suður í lokuðum inngarði.
  • Sérbílastæði í lokuðum bílakjallara.
  • Snjallbox fyrir heimsendingar er staðsett í anddyri.
  • Rúmgóð geymsla í kjallara og góð sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 
  • Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar á baði og í eldhúsi. 
  • Góð staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu, veitingastaði, kaffihús og matvöruverslanir. 
  • Stutt í grunnskóla og leikskóla og sundlaug.

Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri með skápum.
Svefnherbergin þrjú eru á vinstri hönd og eru þau á annarri hæð frá götu.
Eldhús er opið inn í borðstofu og stofu með smekklegri innréttingu og eyju. Kvartsteinn frá Silestone í borðplötum.
Baðherbergi með Walk- in sturtu og góðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Í stofu eru gólfsíðir gluggar en þaðan er útgengt á 7,2 m² verönd sem snýr til suðurs í átt að inngarði.
Eigninni fylgir 7.7 m²  geymsla í kjallara sem er hluti af birtu flatarmáli
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Bílastæði með rafhleðslustöð í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni.
 
  • Bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir með rafhleðslustöð.
  • Glæsileg og mikil sameign og inngarður.
  • Gólfhitakerfi í íbúðinni og gólfsíðir gluggar sem njóta sín vel.
  • Vandaðar innréttingar og tæki - kvartsteinn frá Silestone í borðplötum.
  • Hljóðvistin uppfyllir ítrustu kröfur byggingareglugerðar. Loftræstingin tryggir betri hljóðvist og loftgæði og er góð vörn gegn raka og ryki.
  • Möguleiki á snjallíbúð m.a. mögulegt að tengja gólfhita við kerfið sem og lýsingu.

Glæsileg eign í hjarta miðborgarinnar þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslun, veitingastaði og mannlíf.

Frekari upplýsingar veitir Júlían J. K. aðstoðarmaður fasteignasala í löggildingarnámi í síma 823 2641 eða á netfanginu [email protected].

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-