YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 97 M²
-
Herbergi 4
-
Stofur 2
-
Svefnherbergi 2
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingarár 1953
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr NEI
LÝSING
REM/AX fasteignasala kynnir í einkasölu: Björt og vel skipulögð 3ja - 4ra herbergja íbúð á 1. hæð. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, eldhús, stofu, herbergi/borðstofu, hjónaherbergi, baðherbergi og herbergi/geymslu á jarðhæð/kjallara. Gluggar eru á þrjá vegu. Sameiginlegur inngangur er með risíbúð.
NÁNARI LÝSING:
Forstofa/gangur: opin inn að holi. Parket á gólfi.
Eldhús: hvít rinnrétting. Borðkrókur. Parket á gólfi. Gluggar á tvo vegu. Léttur veggur aðskilur eldhús og borðstofu.
Stofa: rúmgóð með glugga á 2 vegu. Parket á gólfi.
Herbergi/borðstofa: búið að opna inn í stofu, hægt að breyta aftur í svefnherbergi með því að setja upp léttan vegg.
Hjónaherbergi: mjög rúmgott. Dúkur á gólfi og gott skápapláss.
Baðherbergi: flísar á gólfi. Sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél. Gluggi.
Herbergi/geymsla: innangengt úr íbúð niður eina hæð um teppalagðan steyptan stiga. Hol fyrir framan sem hægt er að nýta sem geymslurými. Parket á gólfi og bjart rými. Skápur.
Þvottahús: í sameign, hver með sína þvottavél/þurrkara.
Þak var endurnýjað 2002, á sama tíma voru kvistir settir á rishæð.
Frábært tækifæri fyrir laghenta.
Vel staðsett eign í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu, leikskóla og útivistarsvæði. Eign sem býður upp á mikla möguleika.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 /
[email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.