301, Akranes

Birkihlíð 5

119.900.000 KR
Sumarhús
4 herb.
150 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Sumarhús
  • Stærð 150 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2023
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

** EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS VIÐ KAUPSAMNING **

RE/MAX og Þórdís Björk Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali kynna
:
Einstaklega vel staðsett, bjart, glæsilegt nýlegt og viðhaldslítið útsýnis heilshárshús í Hvalfjarðarsveit. Eignin er sérlega vel skipulögð með mikilli lofthæð og stórbrotnu útsýni yfir Hvalfjörðinn. Húsið er innflutt frá Litháen frá fyrirtækinu Ecobustas og er húsið sett saman/smíðað af aðilum sem komu til landsins á þeirra vegum. Burðarvirki hússins er steinsteypa og timbur. Sökklar og botnplata eru steinsteypt og stendur húsið á 8.464 fm leigulóð og er leigusamningur til 99 ára frá 15.júlí 2021. Skipulag eignar er sérlega gott og er húsið sérlega vel staðsett hvað varðar birtuskilyrði og útsýni. 
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 eða á netfangið [email protected]
Nánari upplýsingar um byggingarefni fylgja með söluyfirliti.
 * 3 rúmgóð svefnherbergi *
* 2 baðherbergi *
* Þvottahús inni á öðru baðherberginu *
* Gólfhiti ásamt handklæðaofnum á baðherbergi *
* Hitaveita - Innfelld ljós í öllum rýmum *
* Stórt og bjart eldhús með granít borðplötu *
* Gólfsíðir gluggar í stofu og borðstofu *
* Dregið fyrir rafhleðslustöð *
* 189,4 fm verönd úr innfluttri furu frá Litháen í kringum húsið *
* Heitur og kaldur pottur frá Normx *
* Yfirbyggt skýli á vesturhlið *
* Rotþró er 3000 lítra *

* Allt sem er í húsinu við sýningu utan persónulegra muna getur fylgt með í kaupunum *

******
 
  


* Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 150 fm sem er íbúðarrýmið sjálft - grunnur fyrir bílskúr eða gestahús er ca 24 fm með pípu- og rafmagnslögn *

Heilsárshús á einni hæð með gríðarlega mikilli lofthæð í öllum rýmum.
Í húsinu er
 forstofa, þrjú herbergi, tvö baðherbergi, þvottahús er inni á öðru baðherberginu, eldhús, borðstofa og stofa. Búið er að  bílskúr með góðri geymslu sem hægt er að nýta sem fimmta herbergið / skrifstofu.
Nánari lýsing eignar:
Forstofan er rúmgóð með hvítum fataskápum og flísum á gólfi.
Herbergi I er við forstofuna og er í góðri stærð með góðum fataskápum frá IKEA og parketi á gólfi.
Úr forstofunni er komið inn í miðrými hússins sem er opið, bjart og virkilega rúmgott rými þar sem eru eldhús, stofa og borðstofa.
Lofthæðin er er mikil yfir öllu rýminu og eru gólfsíðir gluggar í borðstofu og stofu með einstaklega fallegu útsýni yfir fjörðinn. Stór rennihurð er við borðstofuna og er útgengt á stóra viðarveröndina sem er samtals 189,4 fm, en einnig er útgengt á veröndina úr stofunni vestan megin. Í eldhúsinu er hvít háglans innrétting með hvítri steinborðplötu, með undirfelldum vaski, virkilega góðu skápaplássi, veggföstum ofni, innbyggðri uppþvottavél og helluborði með gufugleypi. Við eyjuna eru fjórir há-stólar sem geta fylgt með ef þess er óskað. Útgengt er á viðarveröndina við endan á eldhúsinu, gengt við hjónaherbergið.
Herbergi II er hjónaherbergið og er það austan megin í húsinu. Herbergið er mjög rúmgott með "opnum fataskápum / fataherbergi". Innangengt er á baðherbergi úr hjónaherbergi.
Baðherbergið austan megin er rúmgott, með góðum innréttingum, sturta, upphengt salerni, rafmagns handklæðaofn og flísar á gólfi og inni í sturtunni. Útgengt er af baðherbergi út á viðarverönd, en þar eru bæði heitur pottur og kaldur pottur frá Normx með hágæða stýrikerfi. Innangengt er einnig í hjónaherbergið en rennihurð aðskilur rýmin.
Herbergi III er vestan megin í húsinu og er mjög rúmgott með góðum fataskápum frá IKEA.
Við hliðina á herberginu er rúmgott baðherbergi / þvottahús.
Það sem telst til baðherbergis: góð innrétting undir handlaug, upphengt salerni, stór sturta, flísar á gólfi og inni í sturtunni.
Það sem telst til þvottahúss: góð innrétting með vaski, hillum fyrir lín og hreingerningarvörur, tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara, tauskúffur undir þvottavél og þurrkaratengi og rafmagns handklæðaofn.
Viðarverönd í kringum húsið er samtals 189,4 fm og þar af eru 16 fm yfirbyggðir vestanmegin sem hægt er að nýta fyrir útiborðstofu og/eða grillskýli. Utan á húsinu allt um kring er virkilega góð lýsing og eru rafmagnstenglar víða.
* Parket og hurðar eru frá Birgisson - Flísar eru frá BYKO - Innréttingar eru frá IKEA - Blöndunartæki á baðherbergjum frá Tengi.
* Dregið hefur verið fyrir rafhleðslustöð
Gólfhiti er í öllu húsinu með digital stýrikerfi.
* Nýlega hefur verið lagt í veginn að húsinu og rótþróin sem er 3000 lítra grafin niður og gengið frá sbr. reglugerð.
Um er að ræða einstaklega fallega eign með stórbrotnu útsýni yfir allan Hvalfjörðinn.

- SJÓN ER SÖGU RÍKARI - 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.

 
Heimasíða RE/MAX

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk