YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 124 M²
-
Herbergi 5
-
Stofur 2
-
Svefnherbergi 3
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingarár 1942
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr NEI
LÝSING
RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson aðstoðarmaður fasteignasala (sími 823 2641 & [email protected]) og Hörður Björnsson Lgf. kynna: Falleg og rúmgóða 124,4 m² 5 herbergja hæð í reisulegu húsi í Norðurmýri/ Hlíðum rétt við Klamratún. Húsið er ný múrviðgert og steinað að utan, lagnir fóðraðar og nýir gluggar að hluta. Stutt er í grunn- og leikskóla ásamt allri helstu þjónustu.Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á [email protected] - Júlían J. K. aðstoðarmaður fasteignasala í lögildingarnámi
3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3DFÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR. - Húsið er ný múrviðgert, steinað og búið að skipta um þá glugga sem þótti þurfa auk svala hurðar (2023).
- 5 herbergja hæð í stóru og reisulegu húsi við Snorrabraut. Aðgengi er að eigninni bæði frá Auðarstræti og Snorrabraut.
- 3 svefnherbergi & 2 stofur.
- Möguleiki á að bæta 4 herberginu við með því að færa eldhús í borðstofu eða gera aðra stofu að herbergi.
- Baðherbergi með glugga og þvottaaðstöðu, tekið í gegn 2017.
- Bílastæði bæði fyrir utan húsið við Snorrabraut og fyrir aftan húsið við Auðarstræti.
- Sameiginlegt þvottahús í kjallara.
- Rúmgóðar geymslur í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
- Góð staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu, veitingastaði, kaffihús og matvöruverslanir.
- Stutt í grunnskóla, leikskóla og sundlaug.
Nánari lýsing:Hæðin deilir einungis inngangi með íbúð á efri hæð.
Komið er inn í
anddyri íbúðar með innbyggðum skáp. Gegnheilt parket er á gólfum nema í eldhúsi og á baði þar sem náttúruflísar eru.
Hjónaherbergið sem er einkar rúmgott og stórt, er strax á hægri hönd, hin
tvö herbergin eru innst á ganginum á vinstri hönd og eru líka rúmgóð.
Eldhús er opið inn í borðstofu og þaðan inn í stofu.
Baðherbergi með Walk- in sturtu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Baðið var tekið í gegn árið 2017.
Tvær stórar stofur með fallegri rennihurð á milli, svo hægt er að útbúa herbergi úr þeim.
Eigninni fylgir
7.3 m² geymsla í kjallara sem er hluti af birtu flatarmáli auk helmingshlutdeild í geymslulofti í risi ásamt helmingshlutdeild í kaldri geymslu í kjallara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign og sameiginlegt
þvottahús með snúrum og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
2023: Húsið er ný múrviðgert og steinað að utan.
2023: Skipt var um þá glugga sem þótti þurfa auk svalahurðar auk gluggum á geymslum og í sameiginlegu þvottahúsi.
2023: Endurnýjun á frárennslislögnum, fóðrun á stofnlögn og fl.
2019: Sameign og þvottahús í kjallara tekin í gegn m.a. málað, og gluggar hæðarinnar málaðir að utan.
2017: baðherbergi tekið í gegn, walk in sturta.
2010: Þak málað.
2008: Eldhús tekið í gegn og sett upp ný innrétting. Glæsileg eign í Norðurmýri/ Hlíðum rétt við hjarta miðborgarinnar þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslun, veitingastaði og mannlíf.
Fjölskyldutengsl eru milli fasteignasölu og seljenda.Stutt er á leikvöll á Auðarstræti og á útivistarsvæðið Klamratún.Frekari upplýsingar veitir Júlían J. K. aðstoðarmaður fasteignasala í löggildingarnámi í síma 823 2641 eða á netfanginu [email protected].Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-