YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 87 M²
-
Herbergi 2
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 1
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingarár 1981
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr NEI
LÝSING
**EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN**
RE/MAX ásamt Gylfa Jens og Guðbjörgu Helgu löggiltum fasteignasölum kynna Seilugranda 6, 107 Reykjavík.
Björt og falleg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í vel staðsettu fjölbýli í vesturbæ Reykjavíkur. Sérgeymsla er í kjallara hússins og er hún að hluta til utan uppgefinna heildarfermetra eignarinnar. Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Virkt húsfélag er í húsinu. Göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði KR, sundlaug Vesturbæjar og ýmsa þjónustu á Eiðistorgi. Handan götunnar er útivistarsvæði, fjara með gulum sandi og endurgerðir hjóla- og göngustígar.** SÆKTU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST STRAX****
SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD (3-D), NJÓTTU ÞESS AÐ GANGA UM EIGNINA Í TÖLVU, SÍMANUM EÐA SNJALLTÆKI**
Eignin er skráð 87,1 fm hjá Fasteignaskrá, þar af íbúðarhluti 56,2 fm og sérgeymsla virðist bara að hluta inni í þeirri fermetratölu. Sérstæði í bílageymslu er skráð 30,9 fm. NÚVERANDI SKIPULAG: Forstofa, stofa, eldhús, baðherbergi, herbergi, svalir og sérgeymsla í kjallara, þar sem búið er að koma fyrir þvottaaðstöðu.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:Gengið er upp snyrtilegan stigagang með sameiginlegum inngangi upp á norðursvalir. Sérinngangur af svölum.
Samstætt parket í stofu og herbergi. Flísar í anddyri, eldhúsi og baðherbergi.
Forstofa: Rúmgóð með fatahengi.
Stofa: Björt og rúmgóð með útgengi út á suðursvalir.
Eldhús:Viðarinnrétting, flísar á milli skápa.Eldavél og vifta. Uppþvottavél. Opið inn í Stofu/borðstofu
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi. Hvít innrétting með handlaug og skápur.
Herbergi: Með frístandandi skáp. Gluggi til suðurs.
Í KJALLARA HÚSSINS:Sérgeymsla er stór og virðist bara að hluta inni í fermetratölu íbúðar. Tengi fyrir þvottavél.
Sameign: Sameiginleg hjólageymsla. Sameiginleg læst geymsla við bílastæðakjallara 65 fm. Húsfélag leigir út herbergi í kjallara og hefur því aukahússjóðstekjur þar.
Innangengt er í bílageysmlu sem er sameiginleg fyrir Seilugranda 2-8.
Samantekið er þetta afar sjarmerandi og skemmtileg 2ja herbergja íbúð á vinsælum stað með einkabílastæði í lokaðri bílageymslu.
Allar nánari upplýsingar veita:
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður í netfanginu [email protected] og síma 822 5124 og
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í netfanginu [email protected].