210, Garðabær

Eskiás 2E

97.900.000 KR
Fjölbýli
5 herb.
139 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 139 M²
  • Herbergi 5
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2022
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna, Eskiás 20, íbúð 0304 fnr. 252-0047

Íbúðin er skráð hjá þjóðskrá 139,4 fm og er geymsla innan íbúðar skráð í þann fermetrafjölda. Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni. íbúðin er á efstu hæð í þriggja hæða húsi.  Skráð byggingarár er 2022 en núverandi eigendur tóku við íbúðinni nýrri í desember 2023.  Skoðið eignina hér að neðan í þrívídd

3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR -  3D

FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.


Nánari lýsing:

Aðkoma: Bílastæði við húsið. Gengið er upp í íbúðina í forstofu á 2. hæð og þaðan er svo stigi upp á 3. hæð þar sem íbúðin er. 

Forstofa: Teppi á gólfi sem og á stiganum upp á 3. hæðina. Hvítur rúmgóður fataskápur. 

Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Útgengt á svalir sem snúa í austur. 

Eldhús: Er samliggjandi með stofu/borðstofu. Blástursofn frá Whirlpool og spansuðuhelluborð. Innbyggður kæli/frystiskápur frá Whirlpool. Hvít vönduð innrétting frá NOBILIA með góðu skápaplássi. 

Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataherbergi inn af. 

Barnaherbergi: Eru þrjú talsins og er parket á gólfi í þeim öllum sem og hvítur fataskápur. 

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Inngöngusturta. Hvít innrétting með handlaug og hár hvítur skápur við hliðina. Stór spegill með ljósi.  Upphengt salerni. Handklæðaofn. Þvottavél og þurrkari eru í baðherbergi. 

Geymsla: Er innan íbúðar. 

Eskiás 2E er 5 herbergja vönduð íbúð á 3ju og efstu hæð með aukinni lofthæð, Íbúðin skiptist í forstofu/anddyri, eldhús og stofu, 4 svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, geymslu innan íbúðar og svalir. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign. Djúpgámar eru staðsettir við hver gatnamót í Eskiás og gert er ráð fyrir fjórflokkun sorps, blandaður úrgangur, pappi, plast og lífrænn úrgangur. Reykskynjarar og slökkvitæki fylgja hverri íbúð. Búið er að koma fyrir aflmiklum rafbílahleðslustöðum sem eru opnar fyrir íbúa og þeirra gesti.


Allar nánari upplýsingar veitir:
Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s: 861-7507 eða á [email protected]

- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.