YFIRLIT
-
Tegund Raðhús
-
Stærð 236 M²
-
Herbergi 5
-
Stofur 2
-
Svefnherbergi 3
-
Baðherbergi 2
-
Inngangur Sér
-
Byggingarár 2018
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr JÁ
LÝSING
RE/MAX kynnir í einkasölu: Glæsilegt endaraðhús í Vogatungu 107 með aukaíbúð. Húsið er 236,7 fm, þar af bílskúr 37,8 fm. Húsið inniheldur þrjú svefnherbergi, (auðvelt að bæta tveimur við á neðri hæð) tvö baðherbergi, forstofu, tvær stofur, tvö eldhús og rúmgóðan bílskúr. Rúmgóðar svalir á efri hæð og möguleiki á að leigja út íbúð á neðri hæð. Hellulagt bílaplan með hita fyrir framan bílskúr og inngang hússins. Mjög vönduð og vegleg timburverönd umlykur húsið með heitum og köldum potti. Útiskúr er á verönd og þak kemur yfir hluta fyrir útiborð og eldhúsaðstöðu.
Bókið skoðun hjá Oddi í síma 782-9282 eða á [email protected]Smelltu hér til að skoða eignina í 3-DSmelltu hér til að fá söluyfirlit sent beint af vef remax.isNeðri hæð:Forstofa flísar á gólfi og fataskápur. Innangengt úr forstofu í bílskúr. Hiti í gólfi.
Gangur er með harðparketi á gólfi. Útgengt á verönd úr gangi.
Stofa og eldhús eru í sameiginlegu opnu rými með harðparketi á gólfi. Hvít sprautulökkuð innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Útgengt á verönd í suður.
Baðherbergi flísar á gólfi og veggjum að hluta, falleg rúmgóð innrétting. Upphengt salerni, walk-in sturta og opnanlegt fag.
Svefnherbergi er rúmgott, stór fataskápur og harðparketi á gólfi.
Þvottahús er í enda bílskúrs. Innrétting fyrir tvær þvottavélar og þurrkara.
Bílskúr er 36,8 m2. Bílskúrshurðaopnari, rafmagn, heitt og kalt vatn.
Efri hæð:Eldhús harðparket á gólfi, sprautulökkuð hvít innrétting frá Kvik, gott skápapláss. Stór eyja með span helluborði.
Stofa og borðstofa eru í sameiginlegu opnu rými með harðparketi á gólfi. Útgengt úr stofu á stórar svalir til vesturs með fallegu útsýni. Mikil lofthæð í alrými efri hæðar.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum. Gluggar í suður- og austurátt. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi er með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi flísar á gólfi og veggjum að hluta, hvít innréttingu frá Axis, upphengt salerni, handklæðaofn, baðkar og walk-in sturta.
Allar nánari upplýsingar veitir Oddur Grétarsson löggiltur fasteignasali, s: 782-9282 eða á [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk